Halla og Jóhanna Rós
08.07.2007 21:44:19 / Halla

NÝ HEIMASÍÐA....

ER AÐ BÚA TIL HEIMASÍÐU HJÁ 123.is, eftir mikla áskorun frá Heiðrúnu vinkonu sem er svo ánægð með að vera með bloggsíðu þar. Slóðin er http://www.123.is/hallae

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 21:17:43 / Halla

Sumarfrí 2007

Hæ hæ, fór til Reykjarvíkur í morgunn og búin að vera í góðu yfirlæti hjá Kristbjörgu systir og Gulla í dag.  Erum búin að vera í sólbaði og chilla :=)  Ekki leiðinlegt, því ég elska sól!  Jóhanna Rós varð eftir í eyjum, langaði ekki að sleppa fótboltaæfingum og er hún hjá Sif og bræðrum sínum.  Síðan kemur hún á fimmtudaginn með Guðný sys og family.  :lol:

Ég er að fara að hitta iðjuþjálfarann minn á Reykjarlundi á morgunn, og fá smá ráðleggingar og pepp 8).  Ekki veitir af hehehe......eftir að ég datt af bleika skýjunum á harða jörðina, varð lífið soldið flókið.  En þetta er allt að koma.  Líður betur með degi hverjum.  Er búin að vera voða dugleg að fara út að ganga á morgnana,  algjör snilld að gera það.  Var svo á jóganámskeiði sem er búið fram á haust.  Og ég hef líka verið að fara í sund. 

Það er af sem áður var þegar ég var límd í sófann 8|.  Það var fyrir Reykjalund.  Nú miða ég örugglega allt við fyrir og eftir Reykjalund, eins og fyrir og eftir gos og þjóðhátíð og sonnna.  Rakel Rut kom til eyja á föstudag og var voða gaman að sjá þessa elsku.  En nú ætla ég að skutla mér á nuddbekkinn hjá henni Kristbjörgu sys og fá heilun.                                    Enjoy life og verið góð við hvert annað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 23:47:45 / Halla

Fluttar heim!

Jæja, þá erum við fluttar aftur heim. Mér finnst ég vera í því að pakka niður og pakka upp úr töskum...... Það er nú kannski ekki skrítið þar sem ég er búin að vera á flakki í allann vetur. En nú er ég eða við meina ég komnar heim í nokkra daga allaveganna.........algjört flökkudýr hehehe. Við mæðgurnar ætlum að kíkja í höfuðborgina um helgina og vera í ca. viku. Guðrún Jóna vinkona og Grétar eru að fara að gifta sig þann 30. júní í Þingvallarkirkju. Verður örugglega æðislegt. Síðan verður veislan í Grímsnesi í Minniborgum og við systurnar og börn erum búnar að leigja okkur bústað þar þá helgi. Það verður nú gaman hjá okkur. Jæja nú er best að fara að hvíla sig, var áðan á fótboltaleik og IBV vann 3-0, bara gaman. Og þeir sem koma hingað inn, endilega kvittið, það er svo gaman að sjá hverjir koma. Farið vel með ykkur og njótið þess að vera til!

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 00:32:25 / Halla

Sumarmynd af Jóhönnu Rós

Heil og sæl öll sömul, ég var að setja inn sæta mynd af Jóhönnu Rós inná myndir. Þetta er nú fyrsta sinn sem að það heppnast hjá mér að setja inn mynd. Sko mig, rosa dugleg........ég hef nú reyndar sett myndir inná aðrar heimasíður, en ekki gengið vel með það hérna á þessu bloggi. En svona er þetta stundum. Við mæðgurnar erum ennþá hérna á Hrauntúninu hjá strákunum og gengur bara vel í búskapnum. Það var voða mikið að gera hjá Jóhönnu Rós í kvöld. Hún byrjaði að æfa fótbolta fyrir nokkrum vikum og hún er mjög spennt. Síðan á að fara í keppnisferð til Reykjarvíkur í júlí, og henni langar að sjálfsögðu með. Skvísurnar í flokknum hennar áttu að selja plastpoka til að safna uppí ferðina. Jóhanna Rós hafði að selja 12 poka og í kvöld vorum við að fara með pokana til kaupendana og ÉG MÁTTI SKO EKKI KOMA MEÐ AÐ SPURJA EFTIR FÓLKINU OG ALLS EKKI KOMA MEÐ INN. Alveg frábært að sjá hún er orðin sjálfstæð og flott stelpa. Hafið það sem best og njótið þess að vera til.......sérstaklega núna þegar sumarið er komið. knúsí knús frá okkur H og J.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 23:49:05 / Halla

Húsfreyja á Hrauntúninu

Heil og sæl öll sömul, nú er ég bara orðin húsfreyja á Hrauntúninu hjá Bigga bróðir og Guðrúnu. Þau skruppu til Danmerkur með kennurunum í Hamarskóla. Við Jóhanna Rós fluttum okkur bara hingað og erum búnar að eignast 2 stráka, 20 og 16 ára, við erum voðalega ríkar :-) Við sjáum nú varla þann eldri hann Hall, hann rétt kemur heim í sturtu og sofa. Hann keypti sér hús um daginn og er á fullu að vinna í því ásamt öðru. En við Jóhanna Rós og Tómas erum meira að dúlla okkur. Okkur finnst t.d. öllum gaman að vera í tölvum....og erum stundum öll í sitthvorri tölvunni. Við fórum út að borða í kvöld við sjávarsíðuna, eða í Friðarhafnarskýlið. Og fórum svo í bíltúr, uppá Stórhöfða á útsýnispallinn og vorum að gá hvort að við sæum Lunda, en sáum enga...... við höldum að við höfum séð þá í sjónum, sundtími hjá þeim kannski.......Við Jóhanna Rós fórum líka í sund í dag í 2 klst. voða nice. En ég var svo heppin að fá sólpall, sólstofu, heitan pott og geggjað flottan bíl TownandCountry með húsfreyju starfinu og það er svakalega flott. Mér finnst ég hafa upgraded soldið mikið frá litlu íbúðinni minni og gamla bílnum, verður erfitt að snúa til baka........... Annars hjálpumst við bara að hér á heimilinu..... Síðan er það að frétta að JRós fékk einkunnirnar sínar á fimmtudaginn og henni gekk alveg rosalega vel, ég er svo stolt af stelpunni minni. Nú er komnar 3 vikur síðan að ég útskrifaðist af Reykjalundi, og mér leið alveg voðalega vel fyrstu 2 vikurnar, en svo var síðasta vika ekkert sérstaklega góð, eiginlega bara frekar slæm. Það hringsnérist allt í hausnum á mér, hvað væri best að gera núna í sambandi við heilsu og lífið. Ég er alltaf að vonast til að verða heil heilsu af því að ég er búin að vinna mikið í mínum málum og læra svo mikið. En ég sé að ég verð að halda áfram og halda mig við námsefnið og fara eftir því til að líða vel. Og ég er búin að taka fram námsefnið mitt frá Reykjalundi, og ætla að vera dugleg að fara eftir því. OG VERA JÁKVÆÐ OG BJARTSÝN...... Og nú er klukkan að verða 12 að miðnætti og þá á ég að fara að sofa.......síðan ætla ég í göngu í fyrramálið. Bæó Halla Reykás

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 01:12:29 / Halla

Sumarið er komið

Halló, var búin að skrifa svaka texta og missti hann út pirrandi....... En hvað um það. Er búin að vera heima á 2 viku og það er viðbrigði að sjá um barn og bú aftur. En það kemur. Fór nú uppá land síðustu helgi og gerði ýmislegt skemmtilegt, fór t.d. uppá Reykjalund og var gaman að hitta alla þar, fór svo á Ungfrú Ísland með Hönnu og þeim og var mjög gaman. Svo var námskeið hjá mér og miðilsfundur..... úllalla...... Alltaf fjör hjá mér í Reykjavík. Nú er ég að reyna að arisera íbúðina mína. Ganga frá fötum, ganga frá dóti og geyma til að fá meira pláss og svona. Væri gaman að þið kvittuðu fyrir sem kæmu hér inn, svo að ég viti að einhver er að lesa þetta hjá mér. Þangað til næst. Knúsbúsí Halla

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 00:41:38 / Halla

Komin til eyja

Halló, þá er ég komin til eyja og búin með 9 vikna dvöl á Reykjalundi. Það er nú soldið skrítið að fara að ákveða aftur hvað á að hafa í matinn ég er svo góðu von á Lundinum eins við sem vorum þar köllum hann. Maturinn bara tilbúinn, ég labbaði bara og náði í bakka og fékk matinn TILBÚINN á diskinum, agalega þægilegt. Mjög góður matur þarna, alltaf stór máltíð í hádeginu og svo skyr, salat og súpa eða grautur á kvöldin. Mjög gott, nema ég verð nú að viðurkenna það að ég var aðeins komin með leið á skyri :=) En besti staður á Íslandi er Reykjarlundur, og með þetta FRÁBÆRA starfsfólk, ef ykkur býðst einhvern tíma tækifæri til að fara þangað, endilega drífið ykkur. Ég lærði mjög mjög mikið þar og er öll önnur á sál og likama. Annars er ágætt að frétta héðan, er búin að fara í tvo morgna í göngu með Heiðrúnu og Rakel vinkonum mínum, rosa hressandi. Og í dag byrjaði ég í jóga, það er nú alveg langþráð að komast í það aftur. Hefur ekki verið jóga síðan JJ flutti, og það er orðið langt síðan það var. Um helgina var voða action hjá okkur. Byrjaði í hádeginu á laugardag það var Jóhanna Rós ásamt flestum börnum úr Barnaskólanum að dansa í íþróttahúsinu, voða flott hjá þeim. En ég fékk nú smá sjokk að koma í fjörið þar, öll börnin og soldill hávaði. Allavega miðað við á Lundinum. En það lagaðist og var svo sýning á vetrastarfi þeirra í skólanum, gaman að sjá það. Síðan var hún Erla perla mín Stúdent á laugardaginn og veislan hennar hófst kl. 17.00 og var frameftir kvöldi/nóttu eins og von og vísa er hjá Toggunum. Þar var mjög góður matur og gaman. Á sunnudeginum fórum við Jóhanna Rós í 1. árs afmæli hjá honum Birki kraftaverkabarninu okkar sem fór nokkra daga gamall í hjartaaðgerð í Boston, hann dafnar þvílíkt vel. Reyndar fékk ég sorglega fréttir á sunnudagskvöld frá USA, einn ljósmyndari sem ég þekki og ég var að vinna með lést langt fyrir aldur fram á föstudaginn, aðeins 51 árs gamall....... Mér brá þvílíkt mikið þegar ég las tölvupóstinn minn frá Alice vinkonu. Ég hringdi strax í hana, og hún var í sjokki eins og allir í bænum sem ég bjó í. Hann var svo vel liðinn, svo jákvæður og glaður og þekkti mjög marga. Við hittum hann í mars á síðasta ári þegar við fórum til USA, þá var hann hress. Fórum í vinnuna til hans, þar sem ég vann, og fórum út að borða saman. Ég hélt nú að ég sæi hann aftur. En svona er lífið, fólk kemur og fer. Við vitum aldrei hver er næstur, sem betur fer. Blessuð sé minning hans, og vonandi líður honum vel þar sem hann er. Ég er nú að hressast aftur, ætla uppá land á morgunn. Fer aðeins uppá Reykjarlund á föstudagsmorgunn og ætla svo á Ungfrú Íslands keppnina á föstudaginn með Díönnu og Hönnu að hvetja hana Stefý dóttir Díönnu. Mig hlakkar svo mikið til, er búin að vera að skoða fötin mín og reyna að ákveða mig í hverju ég ætla að fara í. Ég tek bara skápinn minn með, nei djók. En það minnir mig á það að ég ætti nú að klára að pakka, er alveg búin að gleyma mér að skrifa þetta blogg. Knús og njótið lífsins. Halla

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 16:50:54 / Halla

Nú er ég að klára á Reykjarlundi á morgunn

Hæ hæ, nú er ég bara að klára á Reykjarlundi á morgunn. Ótrulegt en satt þá er ég búin að vera í 9 vikur á Reykjarlundi. Kem til eyja á föstudagskvöldið með jólfanum. Heyrumst, sjáumst knús Halla

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 00:31:44 / Halla

Halló

Halló halló, bara að láta vita að ég er á lífi og bloggsíðan líka hmmmmmmm. Er enn á Reykjarlundi og verð tæpar 3 vikur í viðbót. Gengur vel, en góðir hlutir gerast hægt. knús knús Halla

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 00:30:09 / Halla

Gleðilega páska, hafið það sem allra best og borðið fullt af páskaeggjum :-)

Halló allir, ég ákvað að fara ekki til eyja um páskana af því að ég var þar síðustu helgi og var bara frekar þreytt og nennti ekki í Herólf eiginlega strax aftur. Ég ákvað að Jóhanna Rós kæmi til mín til Reykjarvíkur. Við erum búnar að vera í góðu yfirlæti hjá Hönnu Maríu vinkonu og family síðan á miðvikudagskvöld. Við fórum í Árbæjarlaug og synda og leika okkur í fyrradag. Í gær fórum við í Bláa Lónið og vorum þar í þvílíkt góðu veðri, sól og sumaryl. Borðuðum meira að segja í sundbolunum og heyrðum allskonar útlenskur.... alveg eins og að vera í útlöndum, alveg æði. Og í dag fórum við í Elliðaárdalinn að leita að soðnum lituðum eggjum en það gekk nú ekki alveg nógu vel...... en enduðum með 3 egg og stelpurnar fengu svo svala og súkkulaðipáskaegg og þær fóru í húlahopp keppni og voru voða duglegar. Viktoría Rún kom í morgunn til okkar og er búið að vera voða fjör hjá skvísunum í dag. En núna ætla ég að horfa á eina dvd mynd. Knús knús Halla og Jóhanna Rós

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 18:44:56 / Halla

Reykjalundur frábær

Hæ hæ, ég er núna búin að vera á Reykjarlundi í tæpa 3 daga. Alveg frábært að vera þarna og staffið er alveg frábært. Ég og Guðbjörg Erla erum núna hjá Guðrún Jónu, ég fékk útivistarleyfi :- ) Það er rosalega vel hugsað um okkur á Reykjarlundi. Ég er byrjuð í sundleikfimi, úti að ganga og í allskonar prógrammi. Síðan er ég búin að hitta ýmsa sérfræðinga, aldrei vitað um svona marga sérfræðinga á einum stað, algjör snilld. Endilega kommentið hjá mér. Knús knús Halla

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 03:19:39 / Halla

Reykjalundur

Jæja vinir og vandamenn. Þá er komið af því, var hringt af Reykjarlundi á fimmtudaginn og ég boðuð að koma inná Reykjalund núna á mánudaginn. Ég hafði hringt daginn áður til að athuga hvar ég væri á biðlistanum hjá þeim og hún sagði að ég væri mjög ofarlega en ég kæmist eflaust inn strax eftir páska. Og ég var alveg sátt við það og byrjuð að plana hvað ég ætlaði að gera þangað til. En svo hringdi hún bara daginn eftir........... Móttökuritarinn sem að hringdi í mig sagði að ég yrði boðuð með viku fyrirvara, en svo breyttist það. Svo ég er búin að hafa nóg að gera að arissera öllum hlutum áður en ég fer. Jóhanna Rós ætlar að vera hjá pabba sínum og fjölskyldu. Það er eitthvað svo skrítið að vera að fara svona frá henni. Ég hef nú mest verið frá henni í um 1 viku. En ég veit nú ekkert hvað ég verð lengi inni, fólk er venjulega frá 4-6 vikur í meðferðinni. En ég ætla að koma heim 30. mars til að koma í ferminguna hjá honum elsku Guðna Frey mínum, sem verður fermdur 1. apríl og það er ekki aprílgabb. Svo ég sé prinsessuna mína ekki í 12 daga, en það verður í lagi. Ég fer út af Reykjarlundi um helgar en má vera þar ef ég vil. Næstu helgi ætla ég að vera í Reykjavík, það kostar að fara allar helgar til eyja og svo er Herjólfur ekkert endilega uppáhalds farartækið mitt hmmmmm. Bíð bara eftir göngunum, þá verður þetta svaka þægilegt. En ég bið að heilsa í bili. Adios amigos

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 23:00:50 / Halla

Ennþá heima

Jæja elskurnar, best að blogga meira. Það er svo gaman þegar fólk commentar á síðunni. Hmmmmm hvað á ég að skrifa, jú það gengur alveg ótrúlega vel að prjóna trefilinn, ég verð örugglega stoltasta prjónakona eyjunnar þegar ég klára hann. Ég verð nú að klára hann, hef nú stundum byrjað að prjóna en eiginlega ekki klárað. En annars er þetta búið að vera róleg helgi, Jóhanna Rós var hjá pabba sínum og family alla helgina í nýja húsinu þeirra. Ég og mamma fórum í mat hjá Guðný og þeim á föstudag og ég horfði í fyrsta skipti á X-factor, það var nú bara gaman, flottur þessi færeyski. Á laugardag fór ég í Ultratone tækið í Hressó, það var mjög fínt. Kíkti svo á Heiðrúnu vinkonu með prjónana og Rakel var þar og krúttlegasta stelpan í bænum hún Ellen Eva, og Jói var þar líka. Það var svaka kósý hjá okkur i brjálaða veðrinu, í hviðunum fór vindhraðinn í 41 meter á sekúndu. Brjálað veður, mig langar nú mest að bara stinga af eitthvert í sól........ Mig vantar SÓl.... Ég ætti kannski bara að fara í ljós, það er ódýrara, eða að mála sól á einhvern vegg hjá mér..... Jæja hvar var ég, við urðum náttúrulega svangar og Heiðrún bara töfraði fram þvílíkt góðar crepes að hálfa væri nóg ummmm hvílíkt gott, hún er alveg snilldar kokkur. Síðan sátum við og prjónuðum áfram, öfga duglegar. Og í dag var hvíldardagur, svo ég bara hvíldi mig og gerði mest lítið og við Jóhanna Rós fórum við svo í mat til mömmu, bara nice. Ég held að ég hafi bara ekkert eldað alla helgina, algjör lúxus. Jæja, svo held ég bara áfram að bíða eftir að heyra frá Reykjarlundi. Vonandi verður það sem allra fyrst. Það er enn og aftur verið að kenna mér þolinmæði, ég held að ég sé bara búin að læra hana nú. Best að hætta núna, núna vitið þið bara allt sem ég er búin að vera að gera um helgina. Knús

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 19:21:08 / Halla

Eitt blogg á mánuði, allaveganna.....

Halló, ætli maður verði ekki að skrifa allaveganna eitt blogg á mánuði til að einhver kíki hérna inn. Erla Signý er held ég að eina sem kíkir á mig ennþá, takk fyrir það og jú og Rakel líka, takk takk. Nú erum við mæðgurnar búnar að vera heima síðan á föstudaginn. Jóhanna Rós fór í skólann kl. 8 og hún byrjaði í leikfimi og síðan var hringt í mig og þá hafði þessi elska ælt á gólfið í íþróttamiðstöðinni og ég var vinsamlegast beðin um að sækja hana. Síðan var upp og niður hjá henni greyinu allann daginn og kvöldið. Svo var hún komin með yfir 39c hita á laugardaginn og búin að vera í móki síðan þá. Mér var nú ekki farið að standa á saman, hún bara svaf og vaknaði aðeins og sagðist vera illt í maganum og höfðinu. En svo áðan vildi hún fara á horfa á Stundina Okkar og ég bar hana inn í stofu. Svo hún er að lagast sem betur fer. Ég fattaði það áðan hvað ég er búin að vera heppin hvað hún er búin að vera lítið veik. Hún var soldið lasin þegar hún var innan við eins árs, en það lagaðist þegar hún fékk rör í eyrun. Af mér er það að segja að ég er enn heima í veikindafríi og búin að fá bréf frá Reykjarlundi með mjög mörgum og ítarlegum spurningum um andlegt heilsufar mitt. Úffff frekar erfitt að svara þessu öllu, en ég er búin að gera það svona í pörtum og hvíli mig svo. T.d. er spurt hvort að kvíði hafi áhrif á líf mitt og þá á maður að svara já eða nei og ég svara já, þá á ég að útskýra hvernig og hver markmið mitt sé til að laga það og hve mikið áhrif þetta hafi á líf mitt. En þetta er nauðsynlegt fyrir þau þarna að vita í hvaða ástandi maður er í. Síðan hringdi kona frá þeim í mig og hún sagði að ég ætti að komast fljótlega inn en gat ekki sagt ákveðna dagsetningu. Gott mál. Ég er nú búin að hafa það mikið betra samt, og ég er búin að læra að prjóna, ótrúlegustu hlutir gerast enn. Er að prjóna þennann flotta trefil hmmmmmm. Jæja elskurnar, ef þið dettið hérna inn þá endilega kommentið. Þangað til næst. Halla

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 01:13:51 / Halla

Heima

Heil og sæl öll, það er nú lítið annað að frétta af mér nema að ég er búin að vera heima og frá vinnu síðan í byrjun janúar.  Það er nú soldið svo skriítið að vera svona heima, en venst ótrúlega vel, þegar mér fór
að líða aðeins skár.  Fór langt niður og leið alveg ömurlega um tíma og nú er ég nú betri en er búin að vera hjá geðlækni í Reykarvík og er búin fara tvisvar til hans og er að fara í 3. skiptið á morgunn, eða héðan á morgunn og til hans á þriðjudaginn..   Það er búið að ákveða og sækja um fyrir mig á Reykjarlund. Og nú bíð ég eftir að heyra í þeim þar og fá að vita HVENÆR ég kemst inn.  Læknirinn ætlar að ýta á það eins og hann getur og ég trúi því að það verði fljótlega.  Hann þarna uppi hlýtur að hlusta á mig, annars er hann með einhver önnur plön og það kemur þá í ljós. En best að vera jákvæður og bjartsýnn, eða að reyna það.
Kær kveðja
Halla

P.S. Það hvarflar nú alveg að mér að ég vildi að nú væri árið 2006 og við stöllurnar værum að fara til USA eins og í fyrraaaaaaaaaaaaaa

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4